Velkomin

Lotus Á heimasíðu Hugleiðslu og Friðarmiðstöðvarinnar í Reykjavík. Lotus

 

Speki mánaðarins:

Enda þótt ég hafi sýnt aðferðirnar til frelsunar, skaltu vita að hún er undir þér einum komin.

                                                                                                       Búdda          (úr bók mánaðarins)

Bók mánaðarins: Hugarró eftir Rob Nairn í þýðingu Árna Óskarssonar

 

 

 

Til að fá frið í heiminum þarf fyrst að fá frið í hjartanu.

Þetta eru einkunnarorð verndara stöðvarinnar en þeir eru tíbetskir munkar sem hafa aðsetur í Skotlandi í tíbetsku klaustri sem heitir Samyé Ling (www.samyeling.org). Þeir eru tveir bræður sem heita Akong Tulku Rinpoche og Lama Yeshe Losal Rinpoche en lína þeirra tilheyrir Kagyu línu tíbetsk búddisma sem er beint undir H.H.17. Karmapa sem flúði frá Tíbet eftir H.H.14. Dalai Lama. Hugleiðslan sem kennd er hér er sú sama og hefur verið í árþúsund í Tíbet og kemur frá Buddha Sakymuni. Kennari sem heitir Rob Nairn kemur að jafnaði einu sinni á ári og heldur námskeið hér.

Allt starf þessara manna miðast að því að hjálpa öðrum og þeir taka ekki greitt fyrir það sem þeir gera. Fólk gefur þeim frjáls framlög og þeir lifa á því.

Í Hugleiðslu og Friðarmiðstöðinni er kennd hugleiðsla á byrjendanámskeiðum fyrir þá sem eru að hefja hugleiðslu og framhaldsnámskeið eru fyrir þá sem hafa hugleitt í einhvern tíma. Einnig eru haldnir fyrirlestrar um ýmis málefni sem bætt geta mannsandann. Regluleg hugleiðsla, opin öllum, er alltaf á miðvikudagskvöldum.

Stöðin fluttist í núverandi húsnæði í ársbyrjun 2007 en áður fór kennsla og hugleiðsla fram í heimahúsi.

Ath. Heimasíðan okkar er reglulega uppfærð og nýjum tenglum bætt við. Verið er að vinna í enskri útgáfu sem verður brátt tilbúin.

Hugleiðslupúðar 

Hugleiðslupúðar eru seldir á miðstöðinni. Hægt er að panta þá á hugleidsla@hugleidsla.is eða kaupa þá beint á hugleiðslukvöldum.Verð: 6.000 kr.

hugleiðslupúði 

 



Dagskrá/Programme

Miðvikudagar/Wednesdays:
Alla miðvikudaga
kl. 19:30 - 20:00
Chenrezig athöfn
kl. 20.00-21:00
Opin hugleiðsla.
Allir velkomnir.

Föstudagsmorgnar Föstudagsmorgnar kl. 08:00 til 08:30 er opin hugleiðsla fyrir all sem vilja byrja daginn vel.

Himalayamarkaðurinn á sínum stað og alltaf opinn þegar atburðir eru í gangi.

Á Döfinni/ Happening now

Jóganámskeið yin og yang
Jóganámskeið yin og yang hefst 12.janúar 2012. Skráning hafin á hugleidsla@hugleidsla.is og janajoga@hotmail.is Takmarkaður fjöldi þátttakenda. Kennari er Þuríður Jana

Stress Reduction (streituminnkun)
8 vikna námskeið hefst 12. janúar kl.20:00 2012. Skráning á hugleidsla@hugleidsla.is. Kennarar eru Halldór læknir, Vilhjálmur sálfræðingur og Oddi Erlingsson sálfræðingur

Námskeið í Mindfulness
hefst 23. janúar 2012 í 8 vikur. Námskeiðshaldrar: Gunnar og Helena. Skráning á gunnar@dao.is eða hugleidsla@hugleidsla.is

Grunnnámskeið í hugleiðslu
Námskeiðið í febrúar er fullbókað. Næsta grunnámskeið verður haldið í september.

If teachings are required in english, please contact hugleidsla@hugleidsla.is, minimum 5 persons.

Tong Len (giving and taking)
Tveggja daga námskeið næst í apríl 2012 - . Skráning á hugleidsla@hugleidsla.is. Kennarar eru Dagmar Vala og Halldór.

Dalai Lama DVD
Hægt er að kaupa DVD disk með íslenskum texta frá fyrirlestri Dalai Lama í Laugardalshöll í helstu bókabúðum fyrir 1.990 kr.
HH 17th Dalai Lama 13.júní-17.júní 2007
kom Lama Yeshe Losal Rinpoche til Íslands, hægt er að sjá myndir hér að neðan.

 

Heimsókn Lama Yeshe